...ætla ég að fara út að borða með vinum mínum. Fara síðan heim og slá öllu upp í kæruleysi. Samt er bara þriðjudagur. Dagurinn þar sem ég komst inn í Princeton.
þriðjudagur, 23. febrúar 2010
Í kvöld...
Ritaði Dórótea Høeg klukkan 11:00 e.h. |
sunnudagur, 21. febrúar 2010
Bollumynd
Jæja, betra er seint en aldrei segir máltækið... Ég var víst búin að lofa að setja inn svona eina bolludagsmynd.
Annars er bara allt gott að frétta. Við fórum til New York um daginn til þess að kjósa. Við komum líka við í norræna húsinu, það var mjög gaman. Skoðuðum norrænt nammi á okurverði og norskar lopapeysur.
Hressir Íslendingar með atkvæðin sín í Icesavemálinu fyrir framan norræna húsið á Manhattan.
Ritaði Dórótea Høeg klukkan 10:33 e.h. |
þriðjudagur, 16. febrúar 2010
Bolludagur :-)
Við Jón Emil bökuðum fullt af bollum í gærkvöldi og þær tókust svona ljómandi vel. Við tókum svo með bollurnar, krem, sultu og rjóma með okkur upp í skóla í dag. Þar sögðum við Könunum frá Bolludeginum og gáfum þeim bollur. Það var mjög gaman. Við tókum líka nokkrar myndir af bolluátinu en við gleymdum vélinni uppi í skóla, þannig að þær verða bara að fá að koma seinna.
Yfir og út.
Ritaði Dórótea Høeg klukkan 2:35 f.h. |
föstudagur, 12. febrúar 2010
Snjór í Princeton
Í gær snjóaði allan daginn og þá á ég við ALLAN daginn. Ég hef aldrei á ævi minni upplifað jafn langvarandi óslitna snjókomu, held ég að ég þori að fullyrða. Í gær var skólanum lokað og kennsla féll niður. Við Jón Emil fórum í göngutúr, það var mjög fallegt að labba um campus og horfa á öll snæviþöktu trén og byggingarnar. Fyrstu tvær myndirnar eru teknar í gær fyrir framan aðalbygginguna í Princeton.
Í dag var svo virkilega fallegt veður, hitastigið rétt ofan við frostmarkið, sólskin og blíða. Ég stóðst ekki mátið og tók nokkrar myndir hérna heima við húsið sem við búum í. Á milli húsanna höfðu nokkrir sprækir tekið sig til og búið til risa snjókall og Jón Dýri var á ferðinni að hreinsa til enda ekki vanþörf á, en myndir segja meira en mörg orð. (P.s. við búum í nr. 12)
Ritaði Dórótea Høeg klukkan 3:08 f.h. |
miðvikudagur, 10. febrúar 2010
Í söguprófi
Gaur fyrir aftan mig
"Heyrðu nenniru að skrifa aðeins skýrar!"
Ritaði Jóhanna Høeg klukkan 5:17 e.h. |
sunnudagur, 24. janúar 2010
Pistill
Eins og glöggir lesendur þessarar síðu hafa kannski tekið eftir eru öll "comment" farin af síðunni og ekki mögulegt að koma með athugasemdir við færslur. Þetta kemur til vegna þess að síðan sem hélt úti athugasemdunum er að breyta til og vill að við förum að borga fyrir afnot af kerfinu þeirra. Ég er að vinna í því að laga þetta þannig að hægt verði að setja inn athugasemdir fljótlega.
Annars er allt gott að frétta hérna megin hafs. Ég held að veðurguðirnir hér hafi litið eitthvað skakkt á almanakið sitt, veðrið er svo milt. Ég næstu viku reikna ég með að hreiðra um mig á arkitektabókasafninu, þar eru margar góðar bækur og margt skemmtilegt að lesa. Þar er líka stór og fallegur gluggi sem leyfir sólinni að skína á mig á meðan ég les :-) Í fyrstu vikunni í febrúar byrjar vorönnin, þá ætla ég að reyna að sækja nokkra kúrsa hér, bæði í verkfræðideildinni og arkitektadeildinni.
Vona að þið hafið það gott,
knús frá Dóru
Ritaði Dórótea Høeg klukkan 2:27 f.h. |