Ég verð nú bara að segja að ég er strax farin að sakna þess að horfa á landsliðsleikina. Þetta er búið að vera svo ofboðslega gaman!!! Maður verður ekkert smá stoltur af því að vera frá litla landinu Ísland á svona dögum. Frábært að sjá strákana fara svona langt. Viljum bara fá að sjá meira af þessu! Svo var líka gaman að sjá í sjónvarpinu hvað það var mikið af fólki sem tók á móti þeim.
Litlu busarnir voru busaðir í dag. Mikið var ég fegin að ég gekk í gegnum það fyrir ári síðan. Í ár voru böðlarnir í hermannabúningum og með tómar paintball byssur. Ég myndi segja að þetta hafi gengið vel fyrir sig. Eftir busun nemendaráðs eru samt alltaf einhverjir sem þurfa að ganga of langt og það fer virkilega í taugarnar á mér.
miðvikudagur, 27. ágúst 2008
Heil klessa af fólki
Ritaði Jóhanna Høeg klukkan 10:22 e.h. |
sunnudagur, 24. ágúst 2008
laugardagur, 23. ágúst 2008
GERUM OKKAR GERUM OKKAR GERUM OKKAR BESTA
JIBBBBBBBBBBBBBBBBBBBBÍÍÍÍÍÍÍ
Á SUNNUDAGINN MÆTUM VIÐ FRANSKA CAMENBERTINUM Á NÝBÖKUÐU BAGGETTI
Ritaði Jóhanna Høeg klukkan 12:53 f.h. |
fimmtudagur, 21. ágúst 2008
Við borðið eru fimm stólar. Tveir menn sitja við borðið og drekka kaffi. Hin fjögur sem í herberginu eru standa með bollana í höndunum og málefni dagsins á vörunum. Ekkert þeirra sest, betra að láta þrjá stóla standa auða en að einn fá ekki sæti við borðið.
Ritaði Dórótea Høeg klukkan 11:13 f.h. |
Undanúrslit
Hreint út sagt frábært. Bögg að vera á leiðinni í skólann akkúrat á meðan leikurinn er...
Ritaði Jóhanna Høeg klukkan 10:40 f.h. |
þriðjudagur, 12. ágúst 2008
Flottur sigur Íslendinga á heimsmeisturum!!
Hlakka til að heyra í vinum mínum í Þýskalandi og vita hvað þeir segja um leikinn:D
Ritaði Helga Høeg klukkan 2:37 e.h. |
mánudagur, 11. ágúst 2008
Fullt fullt af skrúfum og vatnsheldum krossvið
Ef einhver skyldi týna mér þá er mig örugglega að finna úti í verkfærahúsi þar sem ég vinn að stórglæsilegri fjallskrínu :-)
Takk fyrir vel heppnaða útilegu ;-)
Ritaði Jóhanna Høeg klukkan 4:12 e.h. |