fimmtudagur, 10. apríl 2008

Serbía

Er að vinna verkefni um Serbíu. Magnað land á marga vegu. Sagan stórbrotin og samt í rauninni svo nýtt land. Ég held að það verði spennandi að kynna sér það. Ef einhver er einstaklega fróður um Serbíu þá má sá hin sami endilega láta mig vita :-)

miðvikudagur, 9. apríl 2008

og afmælisbarn dagsins er.....:


Dóra!!! Þetta er hreint með ólíkindum!! en þetta er í 22. skiptið í röð sem einmitt Dóra hlýtur þennan eftirsótta titil þann 9. apríl:) Óskum henni að sjálfsögðu ynnilega til hamingju með daginn!


Knús þín Helga

þriðjudagur, 8. apríl 2008

Ástkæra ylhýra

Ég stóð á Hlemmi og beið eftir tólfunni. Þá gekk til mín stelpa á mínum aldri, hún spurði mig á íslensku með útlenskum blæ:

"er 12 þegar farin?"

Mér þótti gaman að heyra útlending tala svona fallega íslensku.

sunnudagur, 6. apríl 2008

Hoppsasa í Berlín


Er einhvern vegin alltaf á leiðinni að blogga en kem því aldrei í verk... Það eru svo margar myndir sem ég þarf að setja inn að ég veit ekki hvar ég á að byrja:) München, pönnukökubakstur (meira að segja ég sneri þeim við í loftinu), Berlin, Kaupmannahöfn... Þess vegna er ég að hugsa um að byrja bara á því á morgun... eða hinn...


Hér erum við á tónlistarsýningu í Frankfurt; við Alex við flottasta píanóið!! mamma svona langar mig í, svona rautt stelpu píanó;)


Annars er bara allt gott að frétta:) Er búin að vera í letikasti yfir helgina sem er voða gott svona öðru hvoru. Veðrið er breytilegt, aðra stundina er ég fullviss um að vorið sé komið, hina er ég aftur í vafa... Bið að heilsa öllum!!!

Knúsí



p.s. hvað passar ekki inn í röðina: München, pönnukaka, Berlin, Kaupmannahöfn??

fimmtudagur, 3. apríl 2008

Við erum komin heim

Þessi mynd er tekin við Ithaca falls á laugardaginn var. Náttúran í kringum Íþöku er virkilega falleg.  Skógar þekja allar hlíðar og hlíðarnar ná eins langt og augað eygir. Ameríka er stórt land. 


Í Íþöku er líka skóli sem heitir Cornell.