laugardagur, 13. nóvember 2010
Annað hvort í hæl eða hnakka...
Afrekaði það í gær að kaupa tvo kjóla... alveg satt
Ritaði Jóhanna Høeg klukkan 6:23 e.h. |
fimmtudagur, 11. nóvember 2010
sunnudagur, 7. nóvember 2010
Daylight saving
In the fall we fall back, in the spring we spring ahead.
Ritaði Dórótea Høeg klukkan 4:06 e.h. |
fimmtudagur, 4. nóvember 2010
Niðurstöður margra mælinga:
Það tekur jafn langan tíma að hlusta á morgunfréttir Ríkisútvarpsins og að borða eina skál af Cheerios.
Ritaði Dórótea Høeg klukkan 12:24 e.h. |
sunnudagur, 31. október 2010
laugardagur, 16. október 2010
laugardagur, 9. október 2010
föstudagur, 8. október 2010
Ég held að það sem skilgreinir góðan kennara er gott skipulag í öllu sem hann gerir. Ég legg mig fram við að vera skipulögð, það getur stundum verið erfitt...
Ritaði Dórótea Høeg klukkan 9:02 e.h. |
fimmtudagur, 7. október 2010
Milli svefns og vöku
ég sit á svörtum, háum , hörðum stól, í herberginu er alltof skært ljós. Hakan liggur á köldum standinum og enninu þrýst upp að reiminni. "Helga, Helga! þú verður að opna augun!" segir augnlæknirinn og skilur ekkert í því að ég klemmi augun aftur. "Ég get ekki skoðað augun nema þú opnir þau!" en sama hvað ég reyni þá eru augnlokin bara alltof þung.
Vekjaraklukkan hringir í þriðja sinn. Klukkan orðin 10 mín yfir sjö - ja, nú verð ég bara að fara á fætur sama hvað tautar. Spurning um að fara fyrr að sofa í kvöld svo að maður geti haldið augunum opnum ef maður skildi lenda hjá augnlækni í nótt;o)
Ritaði Helga Høeg klukkan 9:36 f.h. |
fimmtudagur, 30. september 2010
Þegar maður stendur í sínu mesta sakleysi og hrærir í potti um leið og fjörugur lagstúfur er flautaður, býst maður ekki beint við því að það komi fugl og fljúgi fram hjá manni! Hvernig komst hann inn???
Ritaði Jóhanna Høeg klukkan 10:10 e.h. |
fimmtudagur, 23. september 2010
Það er eitthvað kósý við þrumuveður.
(efað maður sé inni...)
Ritaði Dórótea Høeg klukkan 12:27 f.h. |
þriðjudagur, 21. september 2010
Selfoss og Princeton eru um margt líkir bæir. Það er til að mynda bara ein aðalgata og hún er LÖNG.
Ritaði Dórótea Høeg klukkan 9:12 e.h. |
mánudagur, 20. september 2010
Að vera utan við sig
Ef maður fattar ekki fyrr en hendurnar eru rennandi blautar að maður hafi verið að ausa súpunni á venjulegan grunnan matardisk, þarf að fara gá hvort buxunum hafi verið snúið rétt þegar farið var í þær í morgunn....
Ritaði Jóhanna Høeg klukkan 8:27 e.h. |
laugardagur, 18. september 2010
Jæja....
Þá eru systurnar farnar af landi brott ég farin og komin af fjallinu, réttirnar búina, kindurnar komnar heim, mamma búin að skreppa til Danmerkur og kvígurnar hans pabba bera eins og þær fái borgað fyrir það...
Ritaði Jóhanna Høeg klukkan 6:09 e.h. |
fimmtudagur, 24. júní 2010
miðvikudagur, 9. júní 2010
Þú verður að læra að hugsa eins og kind!!!
Er ég eitthvað kindarleg? Nei eins og kind hehe
Ritaði Jóhanna Høeg klukkan 12:11 e.h. |
þriðjudagur, 1. júní 2010
laugardagur, 22. maí 2010
Setti persónulegt met í vikunni sem er að líða... Prjónaði eitt vettlingapar :)
Ritaði Dórótea Høeg klukkan 10:43 e.h. |
mánudagur, 17. maí 2010
Six flags
Á laugardaginn var fórum við Geir, Valla og Jón Emil í skemmtigarð sem heitir Six flags. Þetta var mjög skemmtileg ferð :) Þegar ég lagðist í rúmið um kvöldið og lokaði augunum var ég ennþá í rússíbana sem fór með mig upp og niður og í marga hringi!!
Valla og Geir
Dóra og Jón Emil
Geir og Jón Emil á leið í hæsta og hraðasta rússíbana í heimi!
Ringlaðir og með blásið hár eftir ferðina!
Fengum okkur pizzur áður en farið var í fleiri rússíbana :)
Öll fjögur, sátt og glöð eftir skemmtilega ferð
Ritaði Dórótea Høeg klukkan 2:10 e.h. |
mánudagur, 10. maí 2010
fimmtudagur, 6. maí 2010
miðvikudagur, 5. maí 2010
9 í stáli :)
Eftir töluverða bið eftir einkunn úr kúrsi sem ég tók síðastliðið haust liggja niðurstöðurnar nú fyrir. Meðfylgjandi mynd sýnir dreifingu einkunna, já, ég er með lægstu einkunnina...
Ritaði Dórótea Høeg klukkan 3:46 e.h. |
sunnudagur, 2. maí 2010
ZzZzZz
Rúmið sem ég keypti og fékk tilsent frá IKEA kom í gær. Við tvær röskar ungar konur töldum það nú lítið mál að tjasla einu stk. rúmi saman. Við nánari athugun kom í ljós að það var hægara sagt en gert. Eftir dálitla leit að leiðbeiningunum komumst við að því að það voru 42 skref og 258 skrúfur!!!
Ritaði Helga Høeg klukkan 5:25 e.h. |
sunnudagur, 25. apríl 2010
þriðjudagur, 20. apríl 2010
Vor í lofti
Ég fékk skemmtilegan tölvupóst í dag. Sauðburður er hafinn á Hæli. Þrílembingar, þrír litlir smákóngar :) Pabbi náði mynd af krílunum og sendi fréttirnar strax yfir hafið.
Já, vorið er komið á Hæli.
Ritaði Dórótea Høeg klukkan 1:14 f.h. |
miðvikudagur, 14. apríl 2010
Eldgos
Eldgosið á Fimmvörðuhálsi virðist hafa bjargað sálartetrum landsmanna. Allt í einu voru spennandi fréttir í fréttatímanum og fallegar myndir. Leiðindafréttir sem innihalda tölur og alls konar útreikninga eða þá flækju eignarhalds íslenskra fyrirtækja fengu að víkja um stund. En svo virðist sem eldgosið hafi mætt ofjarli sínum: Skýrslunni um bankahrunið. Það ákvað því bara að hætta, það taldi sig sigrað.
Ritaði Dórótea Høeg klukkan 12:35 f.h. |
mánudagur, 12. apríl 2010
Af músum...
Þessar mýs eru allstaðar!!! Ef þær eru ekki hlaupandi um étandi mélið eða nagandi göt á hitt og þetta fljóta þær dauðar um í mjólkurfötunum og villa um fyrir manni þannig maður tekur í þær haldandi það að þær séu skítaköggull, bregður svo mikið að maður skrækir upp fyrir sig. En ekki nóg með það ef þær eru ekki lifandi eða dauðar í kringum mann er maður að spila um þær... Myopic mice...
Ritaði Jóhanna Høeg klukkan 9:23 e.h. |
föstudagur, 9. apríl 2010
NYC
Ég minnist þess einu sinni að hafa farið í keppni (ég held við Helgu) um það hvernig maður stafsetur New York City. Það er sko ekkert grín. Nú er ég búin að læra það og á laugardaginn var fórum við Jón Emil og Doug þangað til þess að skoða okkur um. Hér fylgja nokkrar myndir úr ferðinni sem var í alla staði vel heppnuð. Við löbbuðum yfir Brooklyn Bridge, það er mikil upplifun (kannski sérstaklega af því að ég er svo mikið byggingarverkfræðinörd). Svo skoðuðum við okkur um í Kínahverfinu og loks tókum við þátt í mörg þúsund manna koddaslag á Union Square.
Ritaði Dórótea Høeg klukkan 2:48 e.h. |
sunnudagur, 4. apríl 2010
miðvikudagur, 31. mars 2010
...Akrafjall og Skarðsheiði eins og fjólubláir draumar...
Mig langar að vita hvernig fjólubláir draumar eru...
Ritaði Jóhanna Høeg klukkan 11:13 f.h. |
mánudagur, 22. mars 2010
Skemmtilegt atvik á mánudegi
Í dag er rigning. En það er allt í lagi því að hún er hlý og krullar á mér hárið.
Ég fór í tíma í dag, sem væri kannski í frásögur færandi nema fyrir eitt mjög skemmtlegt atvik. Prófessorinn var að tala þegar allt í einu byrjar þessi mikla tónlist aftarlega í salnum. Fyrst hélt að þetta væri sími en þegar ég sneri mér við í sætinu sá ég strák í bardaga við tölvuna sína. Hún virtist hafa yfirtökin því tónlistin hljómaði frá henni um allan salinn. Að lokum skellti hann henni aftur, hristi hana og hljóp út. Ómur tónlistarinnar heyrðist utan af gangi og allur salurinn sprakk úr hlátri, meira segja bros færðist fram á varir prófessorsins.
Síðan hélt kennslan áfram eins og ekkert hefði í skorist.
Ritaði Dórótea Høeg klukkan 8:43 e.h. |
föstudagur, 19. mars 2010
Góð byrjun á degi...
1) Horfa út um gluggann og sjá að sólin skín
2) Fara út í garð og leika við hundinn í döggvuðu grasinu
3) Hlusta á fuglana
Ritaði Dórótea Høeg klukkan 12:47 e.h. |
miðvikudagur, 17. mars 2010
Og tvívetnisoxíðið streymir niður af himnum ofan...
Ritaði Jóhanna Høeg klukkan 5:18 e.h. |
þriðjudagur, 16. mars 2010
Dinky
Það er svo margt í heiminum sem ég skil ekki. Til dæmis á ég mjög erfitt með að átta mig á einu hérna í Ameríkunni. Þannig er mál með vexti að á milli Lawrence, þar sem við búum og Campus eru lestarteinar og vegurinn liggur yfir teinanna. Þess vegna hefur verið sett upp svona slá sem fer niður þegar lestin fer fram hjá svo að ekki verði áresktur bíla og lestar. Þetta er allt gott og blessað og ég hef mjög gaman af að sjá lestina koma. Hún heitir "The Dinky" og er aðeins tveir vagnar. Tilgangur hennar er að flytja nemendur frá aðallestarstöð Princeton bæjar inn á Princeton Campus.
En að því sem ég skil ekki: Af hverju stoppa skólabílstjórarnir alltaf við lestarteinana, opna dyrnar og líta vel til beggja hliða áður en þeir keyra yfir? Af hverju mega þeir ekki bara treysta því að sláin detti niður, rauðu ljósin fari að blikka og bjöllurnar að klingja? Einhver sagði mér að þetta væri bundið í lög, hmm... skrítið.
Annars skín sólin í dag eftir alla rigninguna, það koma víst alltaf skin á milli skúra :)
Ritaði Dórótea Høeg klukkan 9:23 e.h. |
mánudagur, 15. mars 2010
Rafmagn
Í gær sat ég við kertaljós og las mér til um rafmagnsljós. Ég var að lesa um meðal annars merka spaða eins og Edison og Tesla. Mér þótti það hálf kaldhæðnislegt að sitja í rafmagnslausu húsi án ljóss og hita og fræðast um þetta merka fyrirbæri. En svona er þetta stundum. Nú er rafmagnið komið aftur, hiti að færast í íbúðina þó ég sé ennþá í góðu ullarsokkunum, ullarpilsinu og ullarpeysunni ;)
Mér þótti merkilegt að sjá alla eyðilegginguna sem veðrið sem fór hér yfir í fyrrinótt olli, rafmagnslínur liggja sem hráviði út um allt (Kaninn setur ekki rafmagnið í jörð). Fallin tré dingla í hálfföllnum köplum, niðurföll yfirfull, umferðarteppur og lokaðar götur. Það sem mér þótti samt merkilegast er að veðrið var ekkert svo brjálað, það var jú hressilegt rok og mikil rigning en samt hefði ég haldið að það þyrfti meira til að valda svona mikilli eyðileggingu.
Ég er alla vega sátt að vera aftur komin með rafmagn, get hitað mér te og skrifað þessa færslu.
Lifið heil.
Ritaði Dórótea Høeg klukkan 1:22 f.h. |
þriðjudagur, 9. mars 2010
Skemmtileg upplifun
Um daginn fórum við Jón Emil út að borða með nokkrum félögum. Á leið okkar í gegnum campus eftir góða máltíð urðum við vitni að mjög skemmtilegum sið. Nokkrir strákar, kannski tylft, höfðu safnast saman í hvelfingu líkri þeim sem eru á myndunum. Þeir röðuðu sér í hring og sungu a capella og það var virkilega fallegt. Hljómurinn í hvelfingunni var svo skemmtilegur og hugmyndin góð. Þessar hvelfingar eru víða um campus.
Ritaði Dórótea Høeg klukkan 4:03 e.h. |
mánudagur, 8. mars 2010
laugardagur, 6. mars 2010
mánudagur, 1. mars 2010
úps...
Bestu kveðjur Helga mäleren ;p
Ritaði Helga Høeg klukkan 10:39 e.h. |
sunnudagur, 28. febrúar 2010
Ikast - fødselsdag - Brønshøj - lejlighed
kv. Helga málari (frekari upplýsingar; billedet er taget under renoveringen, før spisebordet kom op;p)
Ritaði Helga Høeg klukkan 8:16 e.h. |