Kom inn í mjög gamalt hús í dag. Timburhús með fallegum gluggum. Innan dyra var mikið af hlutum, stórum sem smáum. Ég þvældist niður í kjallara, þar var fremur dimmt, þó var nóg af ljósakrónum af mörgum stærðum og gerðum. Annar gestur í húsinu gekk um á hæðinni fyrir ofan mig, það brakaði í gólfinu undan þunga hans. Er hann steig fæti niður beint fyrir ofan eina ljósakrónuna kviknaði á henni.
fimmtudagur, 29. nóvember 2007
þriðjudagur, 27. nóvember 2007
ZZZZZZZZZZZzzzzzzzzzzzzzzzzzzZZZZZZZZZZZz
Vá ég er alveg geggjað þreytt og er að hugsa um að fara að sofa.
At hvile sig er det mest opslidende som du gör fordi du kan ikke lægge det fra dig og hvile dig lit... hihihi
Ritaði Jóhanna Høeg klukkan 1:38 f.h. |
miðvikudagur, 21. nóvember 2007
súkkulaði
Er núna að gæða mér á dýrindis súkkulaði stykki. Nammmm. En á víst að vera að skrifa skýrslu sem ég er alveg að fara að gera núna... En ég sit núna á bókasafni FSu og er að vona að það komi ekki það öflugur sjálfti að sólflekarnir fari að hrinja niður. Ætli það sé ekki bara best að hugsa sem minnst um það...
Ritaði Jóhanna Høeg klukkan 2:53 e.h. |
þriðjudagur, 20. nóvember 2007
Alltaf að skemmileggja
Þessa dagana erum við alltaf að skemmileggja eitthvað í efnisfræði... í dag brutum við timbur og steypu.
Ritaði Dórótea Høeg klukkan 9:57 e.h. |
sunnudagur, 18. nóvember 2007
Nýjar myndir!!
Fimmtudaginn 8. nóvember fórum vid á tónleika med fílharmóníusveit Ungverjalands. Tónleikarnir voru í Nürnberg. Vid fórum nokkrir krakkar saman - ein stelpa úr hópnum ad nafni Anne baud okkur fyrst öllum í mat heima hjá sér (en hún býr í Nürnberg) og svo (eftir nokkurn rugling med ad rata:)) fórum vid á tónleikana sem var ótrúlega gaman!
Vid Moritz, hann er víoluleikari og alveg ad vera búinn ad laera tungubrjótinn um tryppin og tröllslygudu trússhestana... ekki slaemt verd ég ad segja!! (var ad spá í ad baeta vid hér fyrir aftan ,,af víóluleikara ad vera" en ég er ekki svo vond - svo ég sleppti tví:)) Skemmtilegur strákur med húmorinn í lagi:)
Vid heyrdum Danssvítu eftir Bartók, Haydn trompet konsert og Brahms synfóníu. Mikil upplifun. Stjórnandinn stjórnadi meira ad segja Brahms án partítúrs (ísl.: raddskrár;)) Ekkert smá flott tónleikahús líka... aetli nýja tónlistahúsid í Reykjavík verdi eitthvad í líkingu vid tetta?!?
Vid Marina med rósirnar okkar!! Hefdi verid gaman ad segja frá tví ad tveir myndarlegir ungir herramenn hefdu faert okkur taer... en verd víst ad svekkja lesendur med tví ad rós fylgdi med er prógrammid (ísl.:dagskráin) var keypt... Marina er píanóstelpa og valfag selló alveg eins og ég:) Ótrúlega fín og skemmtileg stelpa.
Eftir hámenningu kvöldsins tótti vel vid haefi ad skella sér á Burger King og fá sér ískalt kók eda ís ádur en vid héldum aftur heim á leid til Dinkelsbühl glöd og ánaegd eftir skemmtilega ferd:)Verslunarleidangur til Würzburg!
Markmid: Dressa alla upp fyrir valsakvöldid!!
Allir hressir árla dags laugardaginn 17. nóvember á ,,brautarstödinni" í Dinkelsbühl. Tar stoppar engin lest en í stadin er haegt ad taka straetó:) Daniella nidursokkin í straetó- og lestaráaetlunina.
Tegar mikid er búid ad versla er naudsynlegt ad setjast einhversstadar á gott kaffihús og fá sér köku og heitt súkkuladi:) Frá vinstri: Daniella, Viktor, einhver sem tród sér med á myndina, Miriell.
Tad tekur á ad versla. Daniella adalstílisti bídur spennt eftir ad Miriell er búin ad máta hvíta skyrtu hinu megin vid tjaldid:)Ritaði Helga Høeg klukkan 2:17 e.h. |
fimmtudagur, 15. nóvember 2007
Harry Potter
Fékk hvítan pakka sendan frá Danmörku í dag... Núna verður ekkert annað gert um helgina en að lesa...
Ritaði Jóhanna Høeg klukkan 5:55 e.h. |
þriðjudagur, 13. nóvember 2007
Alveg magnað
Mér finnst alveg magnað að ég geti setið hér við fínu nýju fartölfuna mína og pikkað inn nokkur orð og þá geti bara allir lesið það!
Í sumar hitti ég strák í Englandi sem kom frá Kína og við erum búin að vera senda e-mail síðan þá. Alveg magnað ég sit á Íslandi og hann í Kína!!!
En nóg um það. Búið að vera brálað að gera það sem liðið er af vikunni....(það er þriðjudagur)... en stundum er þetta bara svona. Söngkeppnin á fimmtudaginn og ball á föstudaginn... úff spurning hvort maður hefur orku í þetta allt.
En læt þetta gott heita í bili.
Ritaði Jóhanna Høeg klukkan 3:25 e.h. |
mánudagur, 12. nóvember 2007
Skammdegið og háu ljósin
Það ríkir sá misskilningur meðal ökumanna að aðeins bílstjóri fremsta bíls í röðinni blindist af háu ljósunum og því er óhætt að slá ljósunum upp í augu bílstjórans sem ekur öðrum bíl í röðinni. Þetta vandamál þekkist varla heima... þar mætast aldrei fleiri en tveir bílar í einu.
Ég minnist þess alltaf á veturna hversu indælt það er að aka bíl á sumrin.
Ritaði Dórótea Høeg klukkan 12:58 e.h. |
fimmtudagur, 8. nóvember 2007
Milli svefns og vöku
Orri hefur lengi talað við mig um að ég tali upp úr svefni... sé oft að tala við Jóhönnu eða nefna hana á nafn. Ég hef helst ekki viljað trúa þessu. (Var satt að segja að vona að Orri væri bara eitthvað að stríða mér) En í nótt talaði ég svo mikið og hátt að ég vakti sjálfa mig...
Ritaði Dórótea Høeg klukkan 4:55 e.h. |
miðvikudagur, 7. nóvember 2007
Playmobil...
Ég var að ganga frá playmóinu og vitið menn á meðan ég var að setja þetta ofan í kassa langaði mig að fara að leika mér með þetta!
Hver vill vera memm???
Ritaði Jóhanna Høeg klukkan 11:09 e.h. |
sunnudagur, 4. nóvember 2007
Hey Tu!! -loksins nokkrar myndir aus Deutschland!!!
Ákvad ad skella fyrst inn einni mynd bara af mér... Tad gaeti jú verid ad tryggir lesendur tessa bloggs séu búnir ad gleyma tví hvernig einn medlimur bloggsins ,,tresostrer" lítur út. Ástaedurnar gaetu verid léleg blogg og myndaframmistada eda nokkud löng fjarvera vidkomandi frá hinu kalda fróni:)
Íbúdin mín eins og hún var í september tegar ég flutti inn. Viljid ekki endilega vita hvernig tar lítur út núna...
Nicole og Bettina. Vid einn af okkar fraegu kvöldverdum:) Erum algerir snillingar í pasta, samloku gerd og spaelingu eggja. Ótrúlega fínar stelpur. Nicole (t.v.) spilar á tverflautu en Bettina (samkvaemt edli málsins t.h.) syngur:)
Daniella med gítarinn... Líka ótrúlega fín stelpa:) Ekki adalfag gítar samt heldur tverflauta;)
Alex, ég og Viktor. Heima hjá mér eftir mikid spjall kvöld og svolítid af myndavélapósum af teirra hálfu. Teir voru ad reyna ad staela Gudrúnar/Helgu pós syrpuna sem hangir fyrir ofan rúmid mitt... en ég verd ad segja ad teir komust ekki med taernar tar sem vid Gudrún höfum haelana!!!
Vedrid var yndislegt, gerist ekki betra haustvedur. Vid bordudum meira ad segja úti oftar en einu sinni og oftar en... nei eiginlega bara tvisvar;)
Já ég var einfaldlega heillud af litunum... tad var sem trén glódu í síddegissólinni.
Fjallgöngugarpar ad gera sig klára í átökin:) Já tad var sko ekki bara setid heima yfir kaffi og kökum... tó ad tví hafi ad sjálfsögdu heldur ekki verid sleppt!!
Helga kvedur ad sinni:DAuf wiedersehen!
Ritaði Helga Høeg klukkan 6:25 e.h. |
laugardagur, 3. nóvember 2007
Það þarf svo lítið til
Velti oft fyrir mér hversu stór áhrif lítið bros getur haft
Ritaði Dórótea Høeg klukkan 2:45 e.h. |
föstudagur, 2. nóvember 2007
Einn tími!
Hversu pirrrrrrrandi getur það verið að mæta í tíma kl. 8.20 og þurfa svo ekki að mæta í tíma fyrr en í síðasta tíma sem byrjar kl. 13.30...
Ritaði Jóhanna Høeg klukkan 8:46 f.h. |
fimmtudagur, 1. nóvember 2007
Nóvember
Fyrir þá sem skildu ekki hafa tekið eftir því þá er komin fyrsti nóvember. Og vitiðið hvað það þýðir? Að eftir einn mánuð og fjóra daga á ég afmæli. Pælíðíði!!! Ég er verri en sex ára börn eða allavegna að mati Guðnýjar. En það er svo gaman að eiga afmæli.
Ég var geggjað ánægð. Átti að fara í stæ 103 próf áðan eeeeeeeeeeeeeeeeeeen nemendaráð skoraði á kennarana í íþróttakeppni þannig hann féll niður.
Yndislegt...
Ritaði Jóhanna Høeg klukkan 11:33 f.h. |














